Vantar þig hjálp?
Hér að neðan eru svör við algengum spurningum og leiðbeiningar fyrir valda virkni í kerfinu.
Sendu okkur skilaboð á spjallinu hérna niðri í hægra horninu ef þú finnur ekki lausnina.
Við svörum yfirleitt innan nokkurra mínútna.
Þolir erindið enga bið?
Hringdu í síma 847-3520 (Andri).
Til að búa til auglýsingu er hægt að smella á Ný auglýsing efst í mælaborði eða fara í Auglýsingar á hliðarstiku þar sem má einnig finna hnappinn Ný auglýsing.
Eftir að smellt hefur verið á Ný auglýsing er hægt að velja hvers konar auglýsingu þú vilt búa til.
Í kerfinu er hægt að stofna þrjár gerðir auglýsinga:
Hefðbundinn borða
Snjallborða
Statísk sniðmát
Með herferðum er búið til birtingaplan fyrir hóp auglýsinga og ákveðið á hvaða tímabili, vikudögum og með hvaða vægi þær eiga að birtast.
Með því að hópa auglýsingar saman í herferð er einnig auðveldara að bera saman árangur milli auglýsinga.
Undir Herferðir í hliðarstiku velur þú Ný herferð og gefur herferðinni nafn.
Síðan smellir þú á Bæta við auglýsingu og velur þær auglýsingar sem eiga að vera í þessari herferð.
Þegar búið er að velja auglýsingar er hægt að stilla:
Vægi: Því hærra vægi því hærra verður birtingahlutfall þeirrar auglýsingar í herferðinni.
Tímabil: Auglýsing mun aðeins birtast þar til tímabilið endar.
Tími dags: Ef þú vilt t.d að auglýsing birtist aðeins fyrir hádegi.
Vikudagar: Ef auglýsing á að birtast eingöngu á ákveðnum vikudögum.
Fyrir þau sem vilja fá enn meiri virkni og og stjórn yfir herferðum bjóðum við upp á aukapakkann Herferðir+ en hann bætir við:
Veðurstillingum: Til að láta láta veðrið stjórna því hvaða auglýsingar birtast.
Yfirtöku í herferðum: Þá tekur ein auglýsingu yfir allar birtingar í ákveðinn tíma, hentar vel fyrir tilboð sem gilda í skamman tíma.
Tímalínu: Sýnir með sjónrænum hætti hvaða auglýsingar verða í birtingu á hvaða tímapunkti. Gagnast mjög vel fyrir flókin birtingaplön.
Það eru tvær leiðir til að koma auglýsingu/herferð í birtingu.
Kaupa birtingar á þægilegan hátt í Birtingamarkaðnum.
Búa til skriftu til að senda á miðla ef þeir eru ekki í Birtingamarkaðnum.
Skriftur gera þér kleift að birta auglýsingarnar/herferðirnar þínar á öðrum miðlum en þeim sem eru í Birtingamarkaðnum.
Skriftur þarf að senda til miðla í tölvupósti sem sjá um að koma þeim í birtingu.
Eftir að það hefur verið gert er samt sem áður hægt að stjórna auglýsingunum sem eru í skriftum og þannig breyta því sem er í birtingu án þess að hafa aftur samband við miðlinn.
Undir Skriftur smellir þú á Ný skrifta, gefur henni nafn, velur velur þá stærð sem er í og vistar.
Þá bætir þú auglýsingu/um eða herferð/um í skriftuna þína.
Þegar öllu hefur verið bætt við getur þú stillt vægi, það er notað til að stjórna því hversu oft auglýsing/herferð birtist í hlutfalli við aðrar auglýsingar/herferðir í skriftunni.
Dæmi: Ef tvær auglýsingar hafa báðar vægið 10, þá fá þær hvor um sig 50% af birtingunum.
Fyrir þá notendur sem vilja meiri stjórn yfir skriftum bjóðum við upp á aukapakkann Skriftur+ sem gefur möguleika á:
Að velja tímabil sem herferð eða auglýsing er gild inn í skriftu.
Yfirtöku í skriftu sem leyfir þér að setja innn auglýsingu eða herferð sem tekur yfir allar birtingar í skriftunni á völdu tímabili.
Að stjórna birtingum á umhverfismiðlum (skilti og skjáir). Þá þarf alltaf að fylgja varaauglýsing með sem birtist ef skjárinn missir netsamband.
Þegar þú hefur bætt öllum auglýsingum/herferðum sem við á í skriftuna smellir þú á punktana þrjá fyrir ofan skriftuna.
Þar er smellt á Sækja skriftu og þá hleðst niður textaskrá með skriftunni.
Þessi skrá er síðan send í tölvupósti til þeirra miðla sem þú ætlar að láta birta innihald skriftunnar.
Þú getur áfram gert breytingar á skriftunni í kerfinu og munu þær breytingar skila sér til miðilsins án þess að þú þurfir að hafa aftur samband.
Inscreen birting er þegar auglýsinga er að minnsta kosti 50% sjáanleg í 1 sekúndu á skjám notenda.
Í Mælaborðinu getur þú séð fjölda inscreen birtinga allra auglýsinga í birtingu.
Til að sjá inscreen birtingar fyrir ákveðna auglýsingu er hún valin undir Auglýsingar og smellt á Tölfræði.
Þær birtingar sem keyptar eru í Birtingamarkaðnum eru með tryggt 100% inscreen hlutfall.
Smellihlutfall er hlutfall (%) þeirra sem smella á auglýsinguna.
Í Mælaborðinu getur þú séð heildar-smellihlutfall fyrir allar auglýsingar sem eru í birtingu.
Til að sjá smellihlutfall fyrir ákveðna auglýsingu er hún valin undir Auglýsingar og smellt á Tölfræði. Þar er einnig hægt að sjá smelli eftir ákveðnum vörum í auglýsingunni.
Skrunhlutfall er hlutfall (%) þeirra sem skruna (e. scroll) til hliðar í auglýsingu sem hefur þá virkni.
Í Mælaborðinu getur þú séð heildar-skrunhlutfall fyrir allar auglýsingar sem eru í birtingu.
Til að sjá skrunhlutfall ákveðinnar auglýsingar er hún valin undir Auglýsingar og smellt á Tölfræði.
Í hvert sinn sem vafri hleður (e. render) auglýsingu er talin impression.
Inscreen hlutfall er hlutfall impressions sem uppfylla skilyrði um inscreen birtingu (50% sjáanleg í a.m.k. 1 sek).
Hægt er að fylgjast með fjölda impressions og inscreen hlutfalli í Mælaborðinu.
BPM sýnir púlsinn á auglýsingu/um og stendur fyrir birtingar á mínútu.
Í Mælaborðinu má sjá BPM allra auglýsinga í birtingu.
Undir Auglýsingar má einnig sjá BPM fyrir hverja auglýsingu.


